Search
Mótmæli gegn Gyðingahatri í London, 2019. Mynd: Steve Eason, flickr

Árásir á Gyðinga færast í aukana

Eftir nýliðna átakahrinu á milli Ísraelsríkis og Hamassamtakanna ríkir nú brothættur friður fyrir botni Miðjarðarhafs. Atburðarásin var fyrirsjáanleg hvort sem litið er á átökin sjálf eða viðbrögð alþjóðasamfélagsins. Vestrænir fjölmiðlar kepptust sem fyrr við að mála sem versta mynd af Ísrael samhliða því að breiða yfir hryðjuverkastarfsemi Hamassamtakanna og annarra palestínskra hópa. Óvönduð fjölmiðlaumfjöllun um átökin hefur haft neikvæðar afleiðingar víða um heim.

Til eru einstaklingar sem eru þeirrar skoðunar að Gyðingar ættu að hafa sig burt frá Ísraelsríki. Áhangendur þessarar hugmyndar er að finna víða um Vesturlönd. Maður myndi ætla að þetta fólk myndi í það minnsta reyna að sanna fyrir Gyðingum að þeir geti átt sér gott og öruggt líf á Vesturlöndum.

Þvert á móti færast ofsóknir gegn Gyðingum alltaf í aukana þegar fjölmiðlar auka neikvæða umfjöllun sína um Ísrael. Þeir sem eiga upptökin að þessum ofsóknum virðast einmitt vera þeir sem vilja Gyðinga burt frá Ísrael. Það er augljóst að frá þeirra bæjardyrum séð eigi Gyðingar ekki að eiga sér samastað nokkurs staðar í heiminum. Undanfarna tvo mánuði voru árásir og hótanir í garð Gyðinga fleiri og alvarlegri en þær hafa verið í marga áratugi.

Í lok maí mældist 500% aukning árása á Gyðinga í Bretlandi. Meðlimum Gyðingasamfélagsins þar bárust einnig morðhótanir og nauðgunarhótanir.1 Í nýrri öldu hatursorðræðu og árása gegn Gyðingum í Bandaríkjunum var rabbíni stunginn fyrir utan sýnagógu í Boston.2 Samtímis á meginlandi Evrópu hefur árásum á Gyðinga fjölgað ásamt aukinni opinberri tjáningu Gyðingahaturs, meðal annars á útifundum stuðningsmanna Palestínu.3 Vestræn yfirvöld hafa lítið sem ekkert aðhafst til að sporna við þessari þróun. Andstæðingar Ísraels hafa sýnt fram á að um þessar mundir eigi Gyðingar sér ekki öruggt athvarf á Vesturlöndum. Þessi ofsóknaralda er næg ástæða til að réttlæta tilvist Ísraelsríkis sem sérstaks athvarfs fyrir Gyðinga.

Lífið í Ísrael er ekki án áhættu en engu að síður kjósa sífellt fleiri Gyðingar að flytja þangað. Þar er að minnsta kosti öruggt að yfirvöld geri það sem þau geta til að vernda Gyðinga gagnvart aðsteðjandi ógn ólíkt Vestrænum ríkjum. Takist öfgahópum að fæla Gyðinga frá Vesturlöndum mun það skaða menningarlega fjölbreytni og trúverðugleika Vesturlanda á alþjóðlegum vettvangi. Sama hvað gengur á fyrir botni Miðjarðarhafs eiga árásir og hatursorðræða gegn Gyðingum aldrei að viðgangast.

Greinin birtist fyrst á visir.is

Heimildir

1 https://www.standard.co.uk/news/london/rabbi-antisemitism-rise-london-jewish-community-cst-b936325.html

2 https://www.independent.co.uk/news/uk/home-news/stabbing-jewish-rabbi-attacked-boston-b1877330.html

3 https://edition.cnn.com/videos/tv/2021/07/01/europe-anti-semitism-pandemic-bell.cnn

Share on Facebook
Share on Twitter
Email
WhatsApp
Telegram
Print