Search
Beatie Deutsch. (photo credit: Courtesy)
Beatie Deutsch. (photo credit: Courtesy)

Fimm barna móðir, hlaupadrottning og áhrifavaldur

Árið 2017 vakti Beatie enn meiri athygli er hún hljóp fullt maraþon einungis sjö vikum fyrir fæðingu fimmta barnssins

The Jerusalem Post gefur árlega út lista yfir 50 áhrifaríkustu einstaklinga meðal Gyðinga í heiminum. Á listanum er jafnan að finna fræg nöfn úr heimi stjórnmála, menningu, varnarmála og viðskipta, en þar má einnig finna óvænt nöfn.

Nafn Beatie Deutsch sem lenti í 42. sæti listans er eitt þeirra. Árið 2009 flutti hún til Ísraels frá Washington DC og settist að í Har Nof, hverfi rétttrúaðra Gyðinga í Jerúsalem.

Beatie-Deutsch maraþonhlaupari og áhrifavaldur

Beatie hóf að æfa langhlaup árið 2015 eftir að hafa eignast fögur börn á aðeins sex árum. Árið eftir lenti hún óvænt í sjötta sæti í hennar fyrsta maraþonhlaupi sem fram fór í Tel Aviv, á tímanum 3:27 klukkustundum. Árið 2017 vakti Beatie enn meiri athygli er hún hljóp fullt maraþon einungis sjö vikum fyrir fæðingu fimmta barnssins og lauk hún hlaupinu á 4:08 klukkustundum.

Árið 2018 lenti hún í fyrsta sæti ísraelskra kvenna í Jerúsalem maraþoninu á tímanum 3:10 klukkustundum. sem var nýtt ísraelskt met. Síðan þá hefur hún hlaupið Tíberías maraþonið á aðeins 2:42 klukkustundum sem er fimmti besti tími ísraelska kvenna í maraþonhlaupi og í maí á þessu ári vann hún hálft maraþon í Riga í Lettlandi.

Eitt af meginmarkmiðum Beatie er að nýta afrek sín innan íþróttarinnar til að styðja við endurhæfingamiðstöð fyrir geðfatlaða unglinga.

Hún hefur ekki aðeins vakið athygli ísraelskra áhorfenda, heldur er hún fyrirmynd margra annarra trúaðra kvenna um heim allan“ ritar Jerúsalem Póst.

“Beatie hefur brotið niður hindranir í umhverfi sínu og er hvatning fyrir aðra til að ná árangri á öllum sviðum lífsins“ segir blaðið að lokum.

Share on Facebook
Share on Twitter
Email
WhatsApp
Telegram
Print