Search
Sarah Silverman í hlaðvarpi sínu. Mynd: Skjáskot frá Youtube

Hvað er síonismi?

Hver sá sem styður tilvistarrétt Ísraels sem gyðinglegs ríkis gæti með réttu kallað sig síonista, hvort sem viðkomandi er trúaður eða trúlaus, sama hvar hann býr og sama hvort hann sé fylgjandi eins, tveggja eða jafnvel þriggja ríkja lausn í deilunni fyrir botni Miðjarðarhafs.

Þau eru fá skammaryrðin sem eru orðin jafn gildishlaðin og neikvæð í hugum margra og „síonisti“. Gjarnan fylgir orðinu hrina af meintum samheitum, til dæmis „kynþáttahatari“, „landræningi“ og „nýlendusinni“. Við nánari eftirgrennslan kemur hins vegar í ljós að fólk virðist eiga erfitt með að koma frá sér einfaldri og hlutlausri skilgreiningu síonismans. En nýlega gerði leikkonan Sarah Silverman heiðarlega tilraun til þess í hlaðvarpi sínu:

„Síonismi, eins og hann er skilgreindur, þýðir að þú ert þeirrar skoðunar að Ísrael eigi sér tilvistarrétt. Þú ert þeirrar skoðunar… að það ætti að vera ríki Gyðinga. Og hey… það eru mörg múslimaríki… Við hér í Bandaríkjunum erum í raun… kristið land, svo má ekki vera til eitt… bara eitt Gyðingaríki?“[1]

Það þarf vart að taka fram að Sarah Silverman staðsetur sig á vinstri væng stjórnmálanna. Yfirlýsing hennar kom mér því nokkuð á óvart. Þetta minnti mig á þá daga sem síonismi var enn talinn til vinstri-baráttumála.

Á sjöunda og áttunda áratugnum lýstu mannréttindafrömuðir í demókrataflokknum eins og Roy Wilkins,[2] A. Philip Randolph og Bayard Rustin yfir stuðningi sínum við Ísrael.[3] Robert Kennedy var einnig dyggur stuðningsmaður Ísraels þar til hann var myrtur af Palestínumanninum Sirhan Sirhan árið 1968.[4] Það var í raun ekki fyrr en undir lok tuttugustu aldar sem Ísraelsríki varð að því flokkspólitíska bitbeini sem það er í dag.

Hverjum manni er auðvitað frjálst að kenna sig við þær stefnur sem hann kýs. En hver sá sem styður tilvistarrétt Ísraels sem gyðinglegs ríkis gæti með réttu kallað sig síonista, hvort sem viðkomandi er trúaður eða trúlaus, sama hvar hann býr og sama hvort hann sé fylgjandi eins, tveggja eða jafnvel þriggja ríkja lausn í deilunni fyrir botni Miðjarðarhafs. Öll smáatriði um yfirborðsstærð og stjórnarfar Ísraelsríkis geta síonistar verið innbyrðis ósammála um.

Í dag er sjaldgæft að vinstrisinni vogi sér að lýsa yfir stuðningi við Ísrael á nokkurn hátt. Sarah Silverman tók því áhættu með yfirlýsingu sinni. En mig grunar að fleiri á vinstri vængnum deili afstöðu hennar þótt þöglir séu. Vonandi munu þeir feta í fótspor hennar og láta í sér heyra. Hver veit, kannski næst aftur þverpólitísk sátt um stuðning við Ísraelsríki og síonismann í náinni framtíð.

Greinin birtist fyrst á visir.is

Heimildir

[1] https://www.facebook.com/realsarahidan/videos/217919783852566

[2] https://news.google.com/newspapers?nid=2211&dat=19670624&id=Dd8mAAAAIBAJ&sjid=7gIGAAAAIBAJ&pg=533,2459703

[3] https://www.nytimes.com/1975/09/12/archives/blacks-organize-proisrael-group-committee-seeks-to-counter-un.html

[4] https://www.reuters.com/world/us/convicted-rfk-assassin-sirhan-sirhan-granted-parole-2021-08-27/

Share on Facebook
Share on Twitter
Email
WhatsApp
Telegram
Print