Search
Efri röð: Bashar al-Assad, Alexander Lúkasjenkó, Ayatolla Ali Khamenei. Neðri röð: Miguél Díaz-Canel Bermúdez, Kim Jong-un, Recep Tayyip Erdogan. Myndir: Wikimedia Commons

Hvað segja einræðisherrarnir um Ísrael og Gyðinga?

Í áranna rás hafa ákveðnir þjóðarleiðtogar ítrekað farið ófögrum orðum um Ísraelsríki og Gyðinga. Eftirfarandi eru beinar tilvitnanir í sex þeirra. Glöggir lesendur munu fljótlega átta sig á að enginn þeirra hefur beinlínis gott orðspor þegar kemur að mannréttindamálum.

„Síonistastjórnin er banvænt krabbameinsæxli í þessum heimshluta. Hún mun án vafa vera dregin upp með rótum.“ – Ayatolla Ali Khamenei, einræðisherra Írans [1]

„[Ísrael er] ófriðarafl í Mið-Austurlöndum, hernámsaðili á arabískum svæðum og sekt um glæpi gegn mannkyni.“ – Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu [2]

„Gyðingar fengu heiminn til að muna eftir [helförinni] og allur heimurinn beygir sig fyrir þeim.“ – Alexander Lúkasjenkó, einræðisherra Hvíta-Rússlands [3]

„Síonísk villimennska er móðgun við heiminn.“ – Miguél Díaz-Canel Bermúdez, einræðisherra Kúbu [4]

„Ísrael mun ekki verða lögmætt ríki, jafnvel þótt friði verði komið á.“ – Bashar al-Assad, einræðisherra Sýrlands [5]

„Hið illa Ísrael, hryðjuverkaríkið Ísrael, ræðst miskunnarlaust og siðlaust á múslima í Jerúsalem.“ – Recep Tayyip Erdogan, einræðisherra Tyrklands [6]

Það er engin tilviljun að einræðisherrar heimsins sameinist á þennan hátt í hatri sínu á Ísrael. Andstaðan gegn Ísrael hefur í raun siglt á fasískri undiröldu allt frá miðjum sjötta áratug síðustu aldar en þá hófu Sovétríkin markvisst að dreifa áróðri gegn Ísrael. Þessi áróður dró upp neikvæða mynd af Ísraelsríki sem afsprengi vestrænnar heimsvaldastefnu sem virti ekki mannréttindi. Í þessum búningi fékk andstaðan gegn Ísraelsríki að lokum hljómgrunn meðal lítils hóps róttækra Vesturlandabúa.

Staðreyndin er hins vegar sú að Ísrael er eina raunverulega lýðræðisríkið í Mið-Austurlöndum. Ísrael virðir tjáningarfrelsi, trúfrelsi, viðskiptafrelsi og kynfrelsi þegna sinna – sömu mannréttindi og eru fótum troðin af áðurnefndum einræðisherrum. Það er óskandi að vestrænir andstæðingar Ísraels endurskoði afstöðu sína, því með óbreyttri afstöðu gætu þeir verið að grafa undan nákvæmlega þeim gildum sem þeir segjast hafa í hávegum.

Greinin birtist fyrst á visir.is.

Heimildir

[1] https://apnews.com/article/ali-khamenei-israel-persian-gulf-tensions-tehran-jerusalem-a033042303545d9ef783a95222d51b83

[2] https://www.jpost.com/israel-news/north-korea-threatens-israel-with-merciless-thousand-fold-punishment-489316

[3] https://www.newsweek.com/belarus-president-condemned-israel-saying-world-bows-jews-over-holocaust-1607733

[4] https://twitter.com/diazcanelb/status/1393170961420201985

[5] https://www.memri.org/reports/interview-bashar-al-assad-arab-defense-agreement-should-be-implemented-long-israel-exists-it

[6] https://www.algemeiner.com/2021/05/10/turkish-president-erdogan-fans-flames-of-jerusalem-conflict-in-hardline-messages-to-hamas-plo-leaders/

Share on Facebook
Share on Twitter
Email
WhatsApp
Telegram
Print