Search
Jews who survived the Holocaust were among those who founded the IDF. Mynd: Avshalom Sluk/Facebook

Hatrið mun ekki sigra

Fyrir tæpum fimm árum stigu íslenskir Eurovision-farar á svið og sungu lagið „Hatrið mun sigra“. Niðurdrepandi titli lagsins fylgir lagatexti sem virðist ekki fjalla um nokkurn skapaðan hlut. Hver er sá sem hatar? Hverjir eru hinir hötuðu?

Það hatur sem hefur verið mest áberandi undanfarin ár, áratugi og árhundruð er án vafa Gyðingahatur. Fangelsanir, pyntingar og aftökur voru yfir löng tímabil nánast daglegt brauð. Og hvergi tók Gyðingahatrið á sig ógeðfelldari mynd en í helförinni.

Þótt íslenska orðið helför sé ekki bein þýðing á enska orðinu Holocaust er það engu að síður mjög viðeigandi. Margra ára löng útrýmingarherferð þýskra nasista gegn Gyðingum líktist einna helst för til helvítis.

Beinn samanburður á helförinni við aðra sögulega atburði er vafasamur, sérstaklega samanburður við samtímaatburði. Við höfum enn ekki séð nokkuð sem jafnast á við einbeittan brotavilja nasista í viðleitni þeirra til að útrýma Gyðingaþjóðinni.

Í hugum Gyðinga gæti helförin allt eins hafa átt sér stað í gær. Áfall helfararinnar hvílir enn í brjósti þeirra Gyðinga sem fæðast í dag. Þótt næstum áttatíu ár séu liðin frá lokum helfararinnar, fer því fjarri að Gyðingar séu loks óhultir.

Það vakti nýlega heimsathygli þegar rektorar þriggja virtra háskóla mættu í dómssal og fullyrtu að það væri „spurning um samhengi“ hvort áköll um þjóðarmorð á Gyðingum féllu undir hatursorðræðu. Þess má geta að slík áköll heyrast reglulega á fjöldamótmælum.

Engu að síður hafa almennir fjölmiðlar staðið sig illa í að varpa ljósi á Gyðingahatur og fordæma það með afgerandi hætti. Líklega er ástæðan sú að helstu Gyðingahatarar okkar tíma eru ekki Vesturlandabúar heldur herskáir íslamistar. Sjálf slagorð þeirra og stofnsáttmálar bera vitni um það.

Í því samhengi má nefna slagorð Hútahreyfingarinnar sem inniheldur yfirlýsinguna, „Bölvun yfir Gyðingana.“

Auk þess má nefna stofnsáttmála Hamassamtakanna, en þar má finna orðin, „Þjónn Allah, það er Gyðingur á bak við mig, komdu og dreptu hann.“

Hér er ekki hægt að grípa í gömlu tugguna um að „eins manns hryðjuverkamaður sé annars manns frelsishetja“. Ofangreind samtök eru hryðjuverkasamtök sem eru bókstaflega grundvölluð á hatri. Hatri á þeim sem voga sér að skera sig úr og vera ólíkir öðrum. Hatri á Gyðingum.

En hatrið mun ekki sigra. Gyðingaþjóðin mun ekki líða undir lok. Gyðingaþjóðin er sterk og getur staðið af sér allar þrengingar. Eftir krossferðirnar, eftir pogromin, eftir gúlögin, eftir jihödin og já, jafnvel eftir helförina, er Gyðingaþjóðin hér enn og hún mun vera hér áfram um ókomna tíð.

Þessi grein er tileinkuð þeim sex milljónum Gyðinga sem voru myrtir í Helförinni.

Share on Facebook
Share on Twitter
Email
WhatsApp
Telegram
Print