Search
Bandaríkjamenn brenna nasistavarning árið 1945 í Köln. Mynd úr kvikmyndasafni.
Bandaríkjamenn brenna nasistavarning árið 1945 í Köln. Mynd úr kvikmyndasafni.

MIFF fordæmir útgáfu og sölu hatursrits um helförina

MIFF (Með Ísrael fyrir friði) styður áskorun sagnfræðinga til bóksala að taka „Tröllasögu tuttugustu aldarinnar“ ekki í sölu og skorar á þær verslanir sem taka þátt í bóksölu fyrir hátíðirnar að taka ekki þátt í dreifingu hennar.

Í nýrri útgáfu Bókatíðinda má finna kynningu á íslenskri þýðingu bókarinnar „The Hoax of the Twentieth Century“. Bókin er grundvallarrit þeirra sem afneita helförinni og hefur haft mikil áhrif á uppgang hugmyndarinnar undanfarna áratugi. Hún byggir á samsæriskenningu þess efnis að öll sönnunargögn um helförina hafi verið fölsuð af Gyðingum til þess að fá samúð heimsbyggðarinnar. Um er að ræða gríðarlegt magn sönnunargagna, þar á meðal ljósmyndir, nafnalista, ættartré og efnislegar eigur fórnarlamba, sem ómögulegt væri að falsa. Útgefandi bókarinnar er maður að nafni Björn Jónsson. Fyrr á árinu mætti hann á minningarathöfn um helförina í pólska sendiráðinu. Á einum tímapunkti stóð hann upp í ásýnd viðstaddra og þrætti fyrir það að helförin hafi átt sér stað.

Það væri óskandi að opin umræða og mótrök myndu nægja til að kveða niður slíkan rógburð, en reynslan hefur leitt annað í ljós. Flestir þeirra sem afneita helförinni hundsa öll mótrök og sönnunargögn, sama hversu borðleggjandi þau kunna að vera. Á Íslandi er tjáningarfrelsi lögfest, en að sama skapi er hatursorðræða ólögleg. Undir hatursorðræðu fellur öll hvatning til ofbeldis gegn hópum fólks. Það eru ýmsir sem vilja meina að helfararafneitun feli ekki í sér hatursorðræðu og að hún sé einfaldlega hluti „heilbrigðra skoðanaskipta um mannkynssöguna“. En hatursorðræða ætti að vera skilgreind sem annað og meira en bein hvatning til ofbeldis. Það ber að skoða öll ummæli í samhengi við aðrar skoðanir þess sem þau viðhefur. Þegar helfararafneitun er skoðuð í hinu stærra samhengi er niðurstaðan skýr: Eina mögulega ástæða þess að einhver geri helfararafneitun að sínu helsta kappsmáli er sú að viðkomandi vill stofna Gyðingum í hættu. Fjölmörg Evrópulönd hafa komist að þessari niðurstöðu og gert alla tjáningu helfararafneitunar ólöglega. Stjórn MIFF þykir það til háborinnar skammar að Ísland sé ekki á meðal þeirra ríkja.

Það verður ekki vanmetið hversu særandi slík tjáning er fyrir afkomendur og skyldmenni þeirra sem létu lífið í helförinni. Þau þurfa ekki aðeins að búa stöðugt við sorgina eftir þetta mesta ódæði 20. aldarinnar, heldur þurfa þau reglulega að horfast í augu við tjáningu sem gerir lítið úr þjáningu þeirra. Í samfélagi sem á að byggjast á mannréttindum og jafnrétti er einfaldlega ekki boðlegt að gera lítið úr harmi annara á þennan hátt. Þótt tjáning helfararafneitunar sé ekki ólögleg í augnablikinu er ekki þar með sagt að ekkert verði að gert. Það er okkar von að Félag íslenskra bókaútgefenda finni það hjá sér að fordæma þessa útgáfu með afgerandi hætti. Einnig tökum við undir nýlega áskorun sagnfræðinga til bóksala1 og skorum á þær verslanir sem taka þátt í bóksölu fyrir hátíðirnar að taka ekki þátt í dreifingu þessarar bókar. Stjórn MIFF vill auk þess hvetja íslenska löggjafarvaldið til að beita sér fyrir því að gera alla opinbera tjáningu helfararafneitunar ólöglega.

Stjórn MIFF á Íslandi

Heimild

https://www.visir.is/g/20202030918d/sagn-fraedingar-bidla-til-bok-sala-vegna-nas-ista-bokar

Share on Facebook
Share on Twitter
Email
WhatsApp
Telegram
Print