Search
Frelsi palestínskra kvenna er skert á Gazasvæðinu. Mynd: Pxfuel (Creative Commons)

Palestínsk kona í farbanni vegna forræðislaga

Þessi grein er að mestu leyti útdráttur úr nýlegri frétt AP.

Fyrir nokkrum vikum taldi Afar al-Najar sig hafa fundið flóttaleið frá Gazasvæðinu. Hún hafði fengið styrk til náms í samskiptatækni við tyrkneskan háskóla og orðið sér úti um öll nauðsynleg skilríki. Hún hafði auk þess greitt 500 dollara gjald til að sleppa við langa biðröðina við landamærin milli Egyptalands og Gaza.

En þegar al-Najar kom að Rafah-landamærahliðinu var henni snúið við af landamæravörðunum. Hún hafði verið sett í farbann. Það voru hvorki ísraelsk né egypsk yfirvöld sem stóðu að baki farbanninu heldur voru það Hamassamtökin og nýtilkomin lagabreyting þeirra.

Sjaríalög í sókn á Gazasvæðinu

Ferðir til og frá Gazasvæðinu hafa verið háðar miklum takmörkunum undanfarin fjórtán ár. Til að byrja með þurfa íbúar svæðisins að sækja um fararleyfi frá Hamassamtökunum. Ísraelsk og egypsk yfirvöld þurfa síðan að ganga úr skugga um að ferðamaður frá Gazasvæðinu tengist ekki hryðjuverkasamtökum. Fjöldi slíkra samtaka hefur hreiðrað um sig á Gaza – meðal annars Hamassamtökin, Palestínskt heilagt stríð (e. Palestinian Islamic Jihad), Hersveit Omars Hadid fursta (e. Sheikh Omar Hadid Brigade) og Hersveitir Abu Ali Mustapha (e. Abu Ali Mustapha Brigades). Hamassamtökin eru stærst þessara samtaka og ráða þau lögum og lofum á Gazasvæðinu.

Síðastliðinn febrúar ákvað lagadómstóll á vegum Hamassamtakanna að innleiða lög sem kváðu á um að fylgdarlausar konur þyrftu leyfi karlkyns „forræðisaðila“ – eiginmanns, sonar eða annars karlkyns ættingja – til að yfirgefa Gazasvæðið. Með þessu gerðu samtökin ákveðin lagaákvæði sjaríalaga að landslögum á yfirráðasvæði sínu.

Þegar mannréttindasamtök gerðu athugasemdir við nýju forræðislögin voru þau örlítið milduð en ekki felld úr gildi. Samkvæmt nýju lögunum getur forræðisaðili beðið um að kona sé sett í farbann ef ferðalagið er talið geta valdið henni „algjörum skaða“ – hvað svo sem það þýðir.

Farbanninu áfrýjað

Faðir al-Najar lagði fram beiðnina um farbann og mun það vera í gildi þar til niðurstaða næst í málinu. Al-Najar áfrýjaði úrskurðinum til nokkurra mannréttindasamtaka á svæðinu en þau voru treg til að veita henni aðstoð af ótta við hefndaraðgerðir frá Hamassamtökunum. Að lokum áfrýjaði hún banninu til dómstóls á Gazasvæðinu.

Faðir al-Najar mætti ekki í fyrstu réttarhöldin og var þeim því frestað. Áður en rétti var slitið spurði dómarinn hana hvers vegna hún hyggðist fara til útlanda og gaf síðan í skyn að hún gæti alveg eins stundað nám við einn af háskólum Gazasvæðisins. Al-Najar þráir að verða blaðakona og hún segir að fjölmenningarríki eins og Tyrkland bjóði upp á tækifæri sem eru ekki til staðar á Gazasvæðinu.

Réttarhöldunum var frestað í annað sinn vegna þess að lögfræðingur föðurins var sagður veikur. Síðastliðinn miðvikudag var þeim frestað í þriðja sinn því nýr lögfræðingur föðurins sagðist þurfa lengri tíma til að kynna sér málið.

Naumur tími til stefnu

Vegna þessara tafa var frestur al-Najar til að hefja námið framlengdur til áramóta. Ef hún kemst ekki til Tyrklands fyrir áramót mun hún tapa námsstyrknum. En hún hefur ekki gefist upp: „Ég gerði mér grein fyrir því að enginn mun hjálpa mér nema ég sjálf og ég gerði mér grein fyrir því að nú yrði ég að vera sterk til að berjast fyrir réttindum mínum,“ sagði hún. „Í stað þessa að gráta í herberginu mínu og bregðast sjálfri mér ákvað ég að berjast. Ég ákvað að berjast í fyrsta sinn á ævi minni.“

Greinin birtist fyrst á visir.is.

Share on Facebook
Share on Twitter
Email
WhatsApp
Telegram
Print