Search
Ísraelskar orrustuþotur á æfingu undan ströndum Ísraels í ágúst 2024. (Ljósmynd: IDF)

Þremur spurningum svarað um árás Ísraels á kjarnorkuinnviði í Íran

Nóttina 13. júní hóf Ísrael árás á kjarnorkuinnviði Írans.

Hér eru svör sem ísraelskir talsmenn hafa gefið við þremur lykilspurningum um stríðið.

Hvers vegna ræðst Ísrael á Íran?

• Ísrael hóf hernaðaraðgerð til að útrýma kjarnorkuinnviðum Írans – tilvistarógn.

• Undanfarin ár hefur róttæka íranska stjórnin verið hlynnt eyðileggingu Ísraelsríkis. Þetta er ekki einungis orðræða heldur skýr stefna.

• Leiðtogar klerkastjórnarinnar hafa opinskátt, stöðugt, hátt og skýrt kallað eftir eyðingu Ísraelsríkis.

• Íran er helsti ríkisstyrktaraðili hryðjuverkastarfsemi í heiminum.

• Í áranna rás hafa írönsk yfirvöld varið fúlgum fjár í mikla hernaðaruppbyggingu sem miðar að lokamarkmiði þeirra – eyðileggingu Ísraels.

• Klerkastjórnin hefur starfrækt háþróaða og leynilega kjarnorkuvopnaáætlun, á meðan hún hefur þóst hafa samningsvilja, blekkt alþjóðasamfélagið og skýlt sér með diplómatískum brellum.

• Skýrslur Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) sanna með óyggjandi hætti að kjarnorkuáætlun Írans hefur ekki friðsamlegan heldur hernaðarlegan tilgang.

• Íran hefur ekki aðeins auðgað úran, heldur hefur það einnig þróað hljóðfráar eldflaugar og unnið að þróun sprengjuodda fyrir kjarnorkusprengjur.

Hvers vegna grípur Ísrael núna til aðgerða?

• Íran er á barmi þess að geta smíðað kjarnorkuvopn.

• Ísrael stafar ógn af kjarnorkuáætlun Írans og hefur ekki aðra kosti en að stöðva hana áður en það er um seinan.

• Íran hefur safnað miklu magni af auðguðu úrani, sem nægir fyrir yfir níu kjarnorkusprengjur. Þriðjungur þessa úrans var auðgað á síðustu þremur mánuðum – mikil magnaukning í framleiðslu. Þetta var gert samhliða samningaviðræðum við Bandaríkin.

• Íran hefur undanfarið tekið mörg skref í áttina að þróun kjarnorkuvopna. Þeir eru komnir nær markmiði sínu en nokkru sinni fyrr.

Út á hvað gengur stríðið í Íran?

• Ísrael hefur rétt til að verja sig og hefur hafið nákvæma og öfluga sjálfsvarnaraðgerð sem neyðarúrræði.

• Aðgerðin beinist gegn hernaðarskotmörkum og innviðum kjarnorkuáætlunarinnar.

• Aðgerð Ísraels er ekki beint gegn írönsku þjóðinni heldur gegn róttækum aðilum sem ógna öryggi hennar.

• Ísrael grípur til allra mögulegra ráðstafana til að lágmarka hættu fyrir óbreytta borgara.

Share on Facebook
Share on Twitter
Email
WhatsApp
Telegram
Print